24.03.1948
Sameinað þing: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)

197. mál, fjáraukalög 1944

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Eins og hv. þm. er kunnugt, var frv. vísað til fjvn. í gær, en síðan hafa verið óslitnir fundir, og má því hv. þm. ljóst vera, að n. hefur ekki haft neitt tækifæri til að attuga málið og skila nál. Það hefði kannske verið hægt að kalla saman fund, en það hefði enginn tími unnizt til athugunar. Nú hafa landsreikningarnir fyrir árið 1944 verið samþ. í báðum deildum, og tel ég ekki nauðsyn á málamyndanál., en þm. geta gert það upp við sig, hvort þeir samþ. frv., án þess að nál. liggi fyrir.