18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í C-deild Alþingistíðinda. (2690)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Af því að hv. menntmn. hefur komið sér saman um að breyta frv. samkv. till., sem hér hefur verið lýst, og mér er kunnugt um, að víðtækara samkomulag er í d. um þessa till., og ég tel mig ekki sérstaklega vera fyrirsvarsmann fyrir Reykjavík og Hafnarfjörð, þá sé ég ekki ástæðu, til að rökstudda dagskráin, sem ég hef áður lýst, komi undir atkv.