15.11.1948
Neðri deild: 17. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í C-deild Alþingistíðinda. (3260)

18. mál, byggingarmálefni Reykjavíkur

Steingrímur Steinþórsson:

Ég vildi aðeins gera þá grein fyrir atkv. mínu, að ég mun hafa fylgt þessu frv. hér við 2. umr. Þar sem ég heyri, að um það er allmikill skoðanamunur milli hæstv. dómsmrh. annars vegar og flm. hins vegar, hvort þessar breyt. eigi rétt á sér, en ég hef hins vegar ekki haft aðstöðu til að kynna mér málið nægilega, greiði ég ekki atkv.