25.11.1948
Efri deild: 19. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í C-deild Alþingistíðinda. (3658)

3. mál, menningarsjóður

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Ég vildi leita eftir því við hæstv. forseta, hvort ekki væri kostur á því að fresta þessu máli í bili og taka það út af dagskrá. Komið hefur til orða að fara aðra leið, en hér er farið fram á, en ná þó sama marki. Ég hef ekki fylgzt með máli þessu, en þar sem það snertir mitt ráðuneyti, vildi ég athuga það, ef færi gæfist á þessu.