11.05.1949
Efri deild: 103. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í C-deild Alþingistíðinda. (4164)

201. mál, innflutningur búfjár

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson) :

Herra forseti. Það er að nokkru leyti rétt hjá hv. 1. þm. N-M., að búnaðarþing hafi eigi verið með innflutningi búfjár. Engin ákvörðun var þó tekin í því efni af því. Til voru eldri l., en um það var rætt að banna allan innflutning búfjár eða leyfa hann, ef nægilega tryggt væri búið um sóttvarnir. Og sú varð niðurstaðan hjá búnaðarþingi að heimila hann framvegis með þeim varúðarráðstöfunum, sem í frv. greinir. Þau urðu úrslitin þar.