25.02.1949
Sameinað þing: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í D-deild Alþingistíðinda. (4828)

73. mál, Kaldaðarnes í Flóa

Hannibal Valdimarsson:

Ég hef áður lagt til, að þessu máli væri vísað til stj., en sú till. er fallin með jöfnum atkv. Ég verð, vegna þess að fyrir liggur till. um að vísa till. til fjvn., þar sem saksóknari málsins er form. n., að telja það óviðeigandi, að málið fái afgreiðslu undir forustu ákærandans í málinu, og segi því nei.