01.03.1949
Sameinað þing: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í D-deild Alþingistíðinda. (4835)

73. mál, Kaldaðarnes í Flóa

Bernharð Stefánsson:

Ég greiddi atkv. á móti því, að málinu væri vísað til fjvn., sökum þess, að ákærandi í málinu er form. þeirrar n. Nú stendur svo á, að form. allshn. er einmitt sá maðurinn, sem að nokkru leyti er fyrir sökum hafður, og því segi ég líka nei við þessari till.