20.04.1949
Sameinað þing: 66. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í D-deild Alþingistíðinda. (5488)

947. mál, stöðuveitingar við atvinnudeild háskólans

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Það er danskur málsháttur, sem er á þá leið, að eins og maður hrópar í skóginn, eins fái maður svar frá honum. Ég hef ekki gert annað en að lesa upp svör við fyrirspurnum, sem bornar voru fram á Alþ. Og sé það að eyðileggja þennan ágæta tíma að svara fyrirspurnunum, þá verð ég að segja það, að sá veldur miklu, sem upphafinu veldur, þ.e.a.s. þeir, sem spyrja.