11.02.1949
Neðri deild: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í B-deild Alþingistíðinda. (599)

13. mál, ríkisborgararéttur

Finnur Jónsson:

Ég vildi staðfesta það, sem hv. 2. þm. S-M. sagði um sína brtt., sem er á þskj. 339 og hefur verið athuguð af meiri hl. allshn. Maður þessi uppfyllir öll þau skilyrði, sem n. kom sér saman um að setja fyrir þeim till., sem hún var sammála um að flytja. Í öðru lagi er það eins og hv. frsm. sagði, að nm. hafa óbundnar hendur viðvíkjandi brtt.

Ég vildi svo aðeins bera þá ósk fram við hæstv. forseta, að hann beri upp hvern tölul. fyrir sig.