05.04.1949
Efri deild: 82. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (618)

13. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (BSt):

Vegna ummæla hv. þm. (BrB), að þetta mál hefði tafizt óþarflega hér í deildinni, þá vil ég taka það fram, að málið var oft á dagskrá, áður en hinir löngu fundir hófust í Sþ. en frsm. málsins var þá veikur, og reyndi ég að fá annan til að hafa framsögu, en tókst ekki, og ber því á móti því, að málið hafi tafizt óþarflega.