28.02.1950
Efri deild: 65. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

120. mál, ónæmisaðgerðir

Gísli Jónsson:

Ég er að vísu á móti einstökum atriðum frv., meðal annars tvöföldu gengi á ferðafé, eins og ég hef lýst í umr. En í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. taki það til alvarlegrar athugunar að afnema þessa tekjustofna, sem hér um ræðir, svo fljótt sem fjárhagur ríkissjóðs leyfir, segi ég samt sem áður já við frv. Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (A. 522).