09.03.1950
Sameinað þing: 32. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í D-deild Alþingistíðinda. (3901)

126. mál, útflutningur veiðiskipa

Forseti (StgrSt) :

Út af þeim ummælum, sem fallið hafa þess efnis, að rétt hefði verið að hafa tvær umr. um þessa till., þá má það e. t. v. til sanns vegar færa. Ég vil því taka það fram, að ef umr. verður nú brátt frestað og málinu vísað til n., þá mun ég á síðara stigi leyfa lengri umr. en vant er, og vona ég, að hv. þm. geti sætt sig við það.