13.03.1950
Sameinað þing: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í D-deild Alþingistíðinda. (3904)

126. mál, útflutningur veiðiskipa

Forseti (ÞÞI:

Á síðasta fundi komu fram tvær till. um nefnd; önnur frá hv. flm. um að vísa málinu til allshn., og hin um að vísa því til fjvn., og mun ég fyrst bera upp fyrri till.