22.03.1950
Sameinað þing: 36. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í D-deild Alþingistíðinda. (3918)

127. mál, innheimta á sölugjaldi bifreiða

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Ég vil bara upplýsa í sambandi við þessa þáltill., að þetta mál, sem hún fjallar um, er þegar í rannsókn. Það hefur verið falið bæði tollstjóra og lögreglustjóra í sameiningu að upplýsa um, hvernig ástatt væri um þær bifreiðar, sem þarna hafa verið seldar, sem um getur í þáltill. Og það hefur þegar farið fram talsvert víðtæk rannsókn í þessu efni og yfirheyrslur af hálfu lögreglustjóra, svo að ég tel, að þetta mál sé á þeirri leið nú þegar, sem þáltill. fjallar um. Hins vegar hef ég ekki mikið við það að athuga, þó að þáltill.samþ.