08.12.1950
Efri deild: 32. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

98. mál, lax- og silungsveiði

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Eins og sést á grg., er réttmæt krafa til þessara veiðiréttinda fallin niður. En ég vil spyrja hv. 1. þm. N-M., sem er manna kunnugastur um þessi mál, hvort það sé til mikils tjóns, ef þessi réttur er ekki endurnýjaður.