13.02.1951
Efri deild: 68. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1369 í B-deild Alþingistíðinda. (2829)

76. mál, áfengislög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég skal geta þess, að ég lýsti þeim skilningi mínum, þegar málið var til 1. umr., að þetta fælist í frvgr. eins og hún var, því að það er í beinu framhaldi af 1. mgr. Hins vegar kom brtt. sama efnis og þessi till. fram við 2. umr., en hún var síðar tekin aftur, en eftir það er ég ekki viss um, að minn skilningur verði lagður í gr., nema þetta komi inn í hana, og þess vegna tel ég rétt, að þessi till. verði samþ.