23.11.1950
Neðri deild: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í C-deild Alþingistíðinda. (3283)

103. mál, Áfengis- og tóbakseinkasala ríkisins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Herra forseti. Mér er ókunnugt um það, hvernig þessar umræddu stofnanir haga innkaupum sínum eða hvort þær kaupa vörurnar um hendur innlendra eða erlendra umboðsmanna eða ekki, en ég vil fara fram á, að það atriði, sem hv. 3. landsk. þm. vakti máls á, yrði athugað í n., sem fær málið til meðferðar.