27.11.1950
Neðri deild: 28. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (386)

24. mál, aðstoð til bænda á óþurrkasvæðunum

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 183, hefur fjhn. d. athugað frv. og mælir með því, að það verði samþ. Eins og tekið er fram í nál., hafa einstakir nm. áskilið sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma. Málið var nokkuð rætt við 1. umr., og sé ég ekki ástæðu til að hafa um það fleiri orð af hálfu n.