07.12.1950
Sameinað þing: 24. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í B-deild Alþingistíðinda. (802)

1. mál, fjárlög 1951

Emil Jónsson:

Ég veit ekki, hvort það er svo um mig einan, en það hafa liðið vikur, sem ég hef ekki fengið neina dagskrá senda til mín. Það hefur stundum borið við, að dagskráin hefur veríð send á skrifstofuna, en undanfarnar vikur hef ég enga dagskrá fengið. Má vera, að svipað gildi um þá, sem ekki eru mættir, að þeir hafi enga dagskrá fengið, og vildi ég því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann dokaði við, þangað til hv. tillögumaður kemur.