04.01.1952
Neðri deild: 53. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (1115)

38. mál, hámark húsaleigu o. fl.

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Út af þessu máli óskaði ég sérstaklega að afla frekari upplýsinga og gagna, sem ég veit að liggja fyrir varðandi Reykjavík a.m.k. eftir þær breyt., er urðu á síðasta vori, og leggja fyrir allshn. En eins og menn vita, hefur enginn tími unnizt til slíks síðan þingi var frestað og þar til nú og því allt við það sama. Hins vegar er ekki ólíklegt, eins og öllu er háttað, að tóm fengist til að athuga þessi atriði.