18.12.1951
Efri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (539)
139. mál, almannatryggingar
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil lýsa því yfir, að verði fjárhagsafkoma Tryggingastofnunarinnar verri en horfur eru nú á, en afkoma ríkissjóðs betri á árinu 1952, þá mun ríkisstj. beita sér fyrir ráðstöfunum hliðstæðum þeim, sem brtt. heilbr.- og félmn. gerir ráð fyrir, þó að hún verði ekki samþ.