05.12.1951
Sameinað þing: 22. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (623)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það hefur verið upplýst hér, að hæstv. ríkisstj. muni bera fram frv. um það, hvernig skuli ráðstafa þeim tekjuafgangi, sem kann að verða á þessu ári, og ég tel, að ákvæði um greiðslurnar á þessum skuldum eigi að koma í það frv., og þar sem það hefur upplýstst hér, að hv. 6. landsk. þm. hefur ekki kunnað að fara rétt með tölur, má ekki treysta þessum tölum heldur, og segi ég því nei.