20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (679)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég get vel álitið, að það mætti eitthvað draga úr því, sem till. fjallar um, en hitt er áreiðanlegt, að ekki er hægt að afnema þetta með öllu nema með því móti að auka verulega risnufé, en engin till. liggur fyrir um það. Auk þess lít ég svo á, að þessi till. sé ekki góðrar ættar, þó að gott fólk hafi flutt hana, og segi ég því nei.