20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Sigurður Bjarnason:

Ég flutti við 2. umr. brtt. um, að Bandalagi íslenzkra leikfélaga yrði veittur styrkur. Þessa till. tók ég aftur í trausti þess, að fjvn. mundi líta réttilega á þetta mál.

Nú hefur verið samþ. að veita í þessu skyni 20 þús. kr., og fylgi ég þess vegna ekki þessari till. og segi nei.