17.11.1953
Efri deild: 22. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)

82. mál, sauðfjársjúkdómar

Páll Zóphóníasson:

Ég tel bæði till., eins og hún er prentuð á þskj. 169, og eins skriflegu till., sem var samþykkt, til skemmda á frv. eins og það er, tel bezt, að það sé samþykkt óbreytt, og segi þess vegna nei.