07.04.1954
Neðri deild: 80. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (999)

184. mál, fasteignaskattur

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er stjfrv., komið hingað frá hv. Ed. Efni þess er að gera þá breytingu á l. frá 1921 um fasteignaskatt, að skatturinn renni hér eftir í bæjar- og sveitarsjóði, en ekki til ríkissjóðs.

Fjhn. hefur athugað frv. og mælir með því, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir á þskj. 616.