19.04.1955
Neðri deild: 74. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1779)

178. mál, bæjarstjórn í Kópavogskaupstað

Forseti (SB):

Ég vildi aðeins vekja athygli hv. 3. landsk. þm. á því, að sú skriflega yfirlýsing, sem hann afhenti forseta í gær, getur ekki skoðazt sem brtt. við sjálft frv. Þess vegna þarf ekki að leita afbrigða fyrir henni. Á hana ber að líta sem munnleg tilmæli til forseta um ákveðna meðferð málsins.