28.04.1955
Efri deild: 75. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1562 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)

178. mál, bæjarstjórn í Kópavogskaupstað

Forseti (GíslJ) :

Ég vil ekki deila við hæstv. ráðherra um þetta atriði, en sem forseti verð ég að lýsa því yfir, að hér hefur ekki verið haldið uppi málþófi í þessu máli af hv. 6. landsk. Hann hefur einmitt farið eftir mínum óskum í sambandi við það að halda hér ekki uppi málþófi, því að ef það hefði verið, þá væri málið ekki komið svo langt sem komið er, og það veit ég að hæstv. ráðh. viðurkennir.