17.02.1955
Sameinað þing: 37. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í D-deild Alþingistíðinda. (2916)

144. mál, stækkun á Vestmannaeyjaflugvelli

Forseti (JörB):

Ég vil benda hv. 9. landsk. á, að í þetta sinn fer atkvgr. aðeins fram um það að vísa till. til síðari umr., og er þess vegna ekki nauðsynlegt að fá afbrigði fyrir þessari till., því að ég vænti þess, að till. fari til n. og tækifæri gefist til að leggja brtt. fram prentaða og hún komi þá einnig fyrir nefndina.