17.12.1954
Sameinað þing: 30. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 405 í B-deild Alþingistíðinda. (358)

1. mál, fjárlög 1955

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Með því að ekki þykir nægilega upplýst, með hvaða verði og með hvaða kjörum hægt sé að semja um það bókasafn, sem hér um ræðir, og í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. afli sér þeirra upplýsinga, svo að það liggi nánar fyrir, þá leyfi ég mér að taka þessa till. aftur.