03.05.1955
Neðri deild: 83. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í B-deild Alþingistíðinda. (861)

165. mál, heilsuverndarlög

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Það þarf að leiðrétta gildistökuákvæði 6. gr. frv., og sást heilbr: ag félmn. yfir það í sambandi við fyrri brtt., sem hún hefur flutt, og leggur þess vegna til, að fyrsti málsl. 6. gr. breytist þannig, að í stað þess, að lögin öðlist gildi 1. maí 1955, standi: „Lög þessi öðlast þegar gildi“. Vil ég leyfa mér að leggja þessa brtt. fram skriflega f. h. nefndarinnar.