24.02.1956
Neðri deild: 76. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)

130. mál, mannfræði- og ættfræðirannsóknir

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hv. menntmn. fyrir afgreiðslu málsins og skal lýsa því yfir, að ég er í öllu samþykkur þeim brtt., sem hún hefur gert, og tel þær yfirleitt til bóta.