09.02.1956
Efri deild: 63. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1401 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Ingólfur Flygenring:

Herra forseti. Út af athugasemdum hæstv. dómsmrh. um sálfræðifrv., þá er það rétt, sem hann tók fram, að n. hefur tekið þetta fyrir og hefur verið í miklum vafa um, hvernig beri að afgreiða það. En það er alveg sjálfsagt að gera því skil með einhvers konar áliti þegar í þessari viku eða á mánudaginn kemur.