29.02.1956
Sameinað þing: 42. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (630)

157. mál, fjáraukalög 1953

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. til fjáraukalaga er samið samkv. till. yfirskoðunarmanna ríkisreikninganna í samræmi við þær venjur, sem tíðkazt hafa. Leyfi ég mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjvn. að lokinni þessari 1. umr.