06.03.1958
Neðri deild: 61. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í C-deild Alþingistíðinda. (1655)

49. mál, veitingasala, gististaðahald o. fl.

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Það er nú orðið alllangt síðan 2. umr. fór fram um þetta mál. Á þeim tíma, sem liðinn er frá því að 2. umr. fór fram, hefur nefndin, sem frv. flytur, fengið í hendur umsögn um það frá Sambandi veitinga- og gistihúsaeigenda.

Nefndin hefur tekið þá umsögn og þær ábendingar, sem í henni felast, til gaumgæfilegrar athugunar og borið þau atriði, sem þar koma fram, saman við ákvæði frv. Niðurstaða n. var sú, að þær ábendingar gæfu ekki tilefni til þess að flytja brtt. við þetta frv., og varð það að niðurstöðu nefndarinnar í heild að leggja til, að frv. gengi áfram eins og það liggur nú fyrir.