03.06.1958
Neðri deild: 112. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (3155)

Starfslok deilda

Ólafur Thors:

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka góðar óskir hæstv. forseta í garð okkar þm. Ég þakka honum fyrir ágæta fundarstjórn og gott samstarf. Ég tek undir þakkir hans til bæði skrifara deildarinnar og starfsfólks þingsins. Ég óska honum og hans ástvinum alls velfarnaðar og blessunar og vona, að við megum einnig hitta hann heilan og glaðan og reifan, þegar við komum saman hér næst. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]