11.12.1957
Neðri deild: 37. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

7. mál, útflutningssjóður o. fl.

Bjarni Benediktsson:

Það vantar mjög á, að þetta mál sé enn þá upplýst til fulls. Hæstv. sjútvmrh. hefur skotið sér undan að svara ákveðnum fsp., sem bornar hafa verið fram, og auk þess farið mjög ranglega með staðreyndir í síðustu ræðu sinni, sem hann flutti eftir að ekki var unnt að svara honum lengur, þar sem við höfðum talað okkar ræðutíma, sem tekið höfum þátt í umr. Þess vegna þarf málið frekari upplýsinga og mun verða rætt nánar við 3. umr., og til þess að gera það mögulegt segi ég já.

2.–3. gr. samþ. með 19 shlj, atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 20 shlj. atkv.