11.12.1957
Neðri deild: 37. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

5. mál, tollskrá o. fl

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um bráðabirgðabreytingu á lögum um tollskrá, er nákvæmlega samhljóða lögum nr. 98 frá 1956, sem gilda fyrir það ár, sem nú er að líða. Er lagt til í þessu frv., að sömu ákvæði gildi einnig fyrir árið 1958.

Fjhn. leggur til, að frv. verði samþykkt, eins og fram kemur í nál. á þskj. 136. Tveir af nm. hafa þó undirritað álitið með fyrirvara.