06.04.1960
Sameinað þing: 37. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (2608)

77. mál, síldariðnaður á Vestfjörðum o. fl.

Forseti (SÁ):

Ég vil mjög eindregið beina þeim tilmælum til hv. þingmanna, að þeir reyni sem bezt að halda sér að þeim málum, sem eru á dagskrá. Við höfum hér á dagskrá átján þáltill., og það væri æskilegt, að sem flestar þeirra gætu komið til umr., þar sem hv. alþingismenn eru ónáðaðir hingað í þingsal á þessum tíma sólarhringsins með það í huga að reyna að fá sem flestar af þessum till. afgreiddar til nefndar.