09.02.1961
Efri deild: 55. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (513)

29. mál, héraðsfangelsi

Páll Þorsteinsson:

Mér þykir svar frsm. nefndarinnar við fyrirspurn minni alls ekki vera skýrt, og þykir mér það miður. Hann segir að það muni verða sama regla í þessu efni og verið hafi. En ég vakti athygli á þessu efnisatriði vegna þess, að hér er verið að setja nýja löggjöf, sem væntanlega á að standa til nokkurrar frambúðar og taka fram þeirri löggjöf, sem áður hefur verið í gildi.