14.03.1961
Neðri deild: 74. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (920)

179. mál, Landsbanki Íslands

Forseti (RH):

Eins og hv. þdm. sjá, eru á dagskrá d. prentuð 11 mál, og ætlunin var að reyna að tæma dagskrána, svo framarlega sem vanalegur fundartími entist til þess. En þegar séð varð, að það gat ekki orðið, var ákveðið að reyna að halda áfram nokkra stund enn þá, en þó ekki úr hófi fram. Nú innan mjög skammrar stundar er ætlunin að fresta þessum fundi, en þó mun verða reynt að ljúka umr. um þau mál, sem á dagskrá eru.