16.03.1961
Efri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í B-deild Alþingistíðinda. (948)

183. mál, Útvegsbanki Íslands

Frsm. minni hl. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. fjhn. gerði svo skýra grein fyrir afstöðunni í nefndinni, að ég tel mig ekki eiga annað erindi hér í ræðustólinn en undirstrika það, sem hann sagði, að afstaðan til þessa frv. er í fullu samræmi við afstöðu til hinna bankafrv., og að því er mína afstöðu snertir, fór hv. frsm. alveg með rétt mál, og ég þarf þar engu við að bæta. Ég er á móti frv.