03.04.1962
Efri deild: 78. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2480 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)

159. mál, sala hluta úr landi Hofteigs og eyðijarðarinnar Austmannsdals

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá Nd., hefur fengið þar venjulega afgreiðslu og athugun á skjölum og skilríkjum, sem krafizt er um sölu jarða. Og landbn. hefur ekkert við það að athuga og leggur samróma til, að þessi jarðasala verði heimiluð.