05.02.1962
Neðri deild: 41. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

129. mál, framsal sakamanna

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Hæstv. forseti. Frv. þetta er flutt vegna samkomulags, sem komizt hefur á milli hinna Norðurlandanna, og löggjafar, sem sett hefur verið þar varðandi framsal sakamanna. Það er ráðgert, að Ísland gerist einnig aðili að þessu samkomulagi, og er frv. í samræmi við þá löggjöf, sem í hinum löndunum hefur þegar verið sett. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið, heldur legg til, að því verði vísað til 2. umræðu og hv. allshn.