05.02.1962
Efri deild: 38. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (733)

130. mál, eftirlit með skipum

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt til þess að samræma þessi lög ákvæðunum um flutning ákæruvaldsins frá dómsmrh. til saksóknara ríkisins. Það þykir eðlilegt, að saksóknaravald í þeim málum, sem hér er um að ræða, lúti hinum almennu reglum og heyri undir saksóknara. Eins er gerð eins konar leiðrétting á öðru ákvæði laganna til samræmis við hinar almennu reglur í lögunum um meðferð opinberra mála.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.