06.04.1963
Sameinað þing: 46. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í D-deild Alþingistíðinda. (3211)

190. mál, sjúkrahús

Forseti (SÁ):

Það skal verða athugað, sem hv. þm. fór fram á, en honum er sjálfum kunnugt um það, að hæstv. forseti, sem sat hér í stólnum á undan mér, gerði ítrekaðar tilraunir til að geta fengið hér atkvgr. og gekk ekki. Á meðan þingfundur heldur áfram, er ekki annað að gera en fresta atkvgr., þar til nægilega margir hv. þm. eru til taks til að greiða atkv.