06.05.1965
Neðri deild: 83. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)
8. mál, náttúrurannsóknir
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það var aðeins að fara fram á það, hvort ekki mætti fresta þessu máli, þangað til dálítið síðar á þessum fundi, svo að mönnum gæfist aðeins meira tóm til þess að athuga málið. Ég vænti, að það sé hægt að afgreiða það eigi að síður í dag, þó að því yrði frestað þangað til nokkru síðar á þessum fundi, umr. ekki lokið, svo að menn gætu borið svolítið betur saman ráð sín.