17.12.1965
Neðri deild: 36. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (261)

93. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. meiri hl. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar, en ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þess. Minni hl., hv. 1. þm. Norðurl. v., hefur skilað séráliti á þskj. 212, en meiri hl. hefur skilað áliti á þskj. 204, og leggur meiri hl. til, að frv. verði samþ. óbreytt.