16.12.1965
Sameinað þing: 23. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í D-deild Alþingistíðinda. (3159)

210. mál, lýsishersluverksmiðju

Fyrirspyrjandi (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvmrh. fyrir svarið við fsp. okkar, og ég vænti þess, að hann geri sér far um að fylgjast vel með þessu máli, að það verði sem rækilegast rannsakað, svo fljótt sem unnt er, og reynt það, sem mögulegt er til þess að finna markað fyrir herta síldarfeiti.