14.04.1967
Efri deild: 64. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1860 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SÓÓ):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 13. apríl 1967.

Þar sem ég er á förum út á land í brýnum erindagjörðum og get því ekki sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Jón Þorsteinsson

4. landsk. þm.

Til forseta Ed.

Unnar Stefánsson hefur áður átt sæti á þingi, og kjörbréf hans hefur verið rannsakað, og tekur hann því sæti hér í þessari hv. deild nú sem 4. landsk. þm., og býð ég hann velkominn til starfa.